Lýsingarhönnun
Lýsing hefur þróast mikið síðustu ár og hafa kröfur um lýsingu breyst verulega. Lýsing og ljós hafa mikil áhrif á fólk, hvort sem það er á heimili, í verslunum, á vinnustöðum – í hvaða rými sem er. Góð lýsing getur bætt líðan og aukið afköst í vinnu og gert umhverfi okkar þægilegra. Slæm lýsing getur valdið óþægindum og vanlíðan. Lýsing verður að vera mismunandi eftir því hvaða hlutverki hún á að gegna.
Við hjá Rafkaup bjóðum upp á ráðgjöf í lýsingu og lýsingarhönnun sem er unnin í samstarfi við eiganda og/eða arkitekt hússins. Upplýsingar og tímapantanir eru í síma 585-2800 eða á sala@rafkaup.is.